Um mig

TextílElín Elín Kemba

ALLT HANDUNNIÐ

Vörumerkið TextílElín býður upp á fyrsta flokks handlitaða ull í lausu, kembum eða lyppum. Ullin er keypt beint af bændum í nærumhverfi Selfoss, handþvegin, handlituð og að lokum unnin í kembivél Íslensku ullarvinnslunnar á Selfossi.

Vörulínan Kemba er eitt af verkefnum mínum. Ég kaupi aðeins gæða ull beint frá bónda. Ég hef sérstakan áhuga á litastúdíu og blanda ég alla mína liti og eru þeir því einstakir og fást hvergi annars staðar. Einnig blanda ég litaðri ull í fallegar samsetningar.

Ég leitast við að bjóða upp á gæði og fjölbreytileika í vörunum mínum. Þá er ég sveigjanleg með hinar ýmsu útfærslur eftir þörfum viðskipavinarins.